Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.

Þingskjal 145  —  145. mál.
Breyttur texti.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um geislavirk efni við Reykjanesvirkjun.

Frá Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur.


     1.      Hvers vegna upplýsti ráðherra ekki almenning um geislavirk efni í borholum við Reykjanesvirkjun fyrr en raun varð á?
     2.      Á hvaða rökum eða gögnum var sú ákvörðun byggð að upplýsa ekki almenning fyrr um málið?
     3.      Hvað líður rannsóknum á því hvort um frekari geislamengun er að ræða í öðrum jarðvarmavirkjunum eða drykkjarvatni á svæðinu?
     4.      Liggja fyrir einhverjar niðurstöður úr þeim rannsóknum?
     5.      Hvers vegna óskaði heilbrigðisráðherra ekki þegar eftir þeim rannsóknum á öðrum jarðvarmavirkjunum og drykkjarvatni sem vísindamenn hjá Geislavörnum og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafa sagt að gera þyrfti?