Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 224 — 216. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um reglur um fyrningu kynferðisbrota.
Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.
1. Telur ráðherra eðlilegt að munur sé á reglum um fyrningu brota sem varða við 210. gr. a og 210. gr. b almennra hegningarlaga?
2. Hvaða rök eru fyrir því að fyrningarreglur eru mismunandi um kynferðisbrot gegn börnum?
Skriflegt svar óskast.