Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 240  —  138. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur
um fangelsismál kvenna.


     1.      Hve margar konur bíða nú afplánunar fangelsisdóms?
    Samtals 40 konur bíða afplánunar fangelsisrefsinga. Af þeim hafa sex ekki verið boðaðar með formlegum hætti, fimm eru í boðun í annað sinn vegna rofs á skilyrðum samfélagsþjónustu og fimm hafa ýmist fengið samþykki fyrir að afplána refsingu í samfélagsþjónustu eða eru með virka umsókn þar að lútandi.

     2.      Hversu lengi má ætla að biðin vari?
    Ýmsir þættir hafa áhrif á bið eftir afplánun og er ekki eingöngu skorti á fangelsisrými um að kenna. Þannig getur dómþoli sótt um frestun á afplánun, sótt um náðun eða sótt um að afplána refsingu með samfélagsþjónustu en umsóknir sem þessar lengja allar biðina.

     3.      Hversu langt hefur liðið að meðaltali undanfarin tvö ár frá því að fangelsisdómur í máli konu féll þar til afplánun hófst?
    Þær konur sem hófu afplánun á sl. tveimur árum þurftu að meðaltali að bíða í tæplega tíu mánuði eftir afplánun frá því að dómur féll þar til afplánun hófst.

     4.      Hve mörgum konum sem dæmdar hafa verið til fangavistar undanfarin tvö ár hefur verið synjað um að gegna samfélagsþjónustu í stað afplánunar?
    Alls hafa 67 konur verið dæmdar í óskilorðsbundið fangelsi sl. tvö ár. Af þeim hefur 13 verið synjað um samfélagsþjónustu á þessum tveimur árum.

     5.      Hvenær er áformað að deild fyrir kvenfanga í nýju fangelsi á Hólmsheiði verði tekin í gagnið?
    Í samræmi við áætlanir er má reikna með að fangelsið verði tekið í notkun á vormánuðum 2016 og verður deild fyrir kvenfanga fyrsta deildin sem tekin verður í notkun í nýju fangelsi.