Ferill 598. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 976 — 598. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um starfslokasamninga.
Frá Karli Garðarssyni.
1. Hversu háar voru starfslokagreiðslur RÚV á rekstrarárunum 2013–2015 í krónum, hversu margir starfsmenn fengu starfslokasamninga og hversu háar voru hæstu og lægstu greiðslur?
2. Hvernig skiptast greiðslurnar á starfsmenn, þ.e. hverjir fengu greiðslur og hversu háar?
3. Hversu margir þeirra sem hættu störfum á tímabilinu hafa verið endurráðnir, hversu margir þeirra sem hafa verið endurráðnir fengu starfslokasamninga, hverjir eru það og frá hvaða tíma voru þeir endurráðnir?
Skriflegt svar óskast.