Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1207  —  738. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um meðferðir við offitu.

Frá Páli Val Björnssyni.


     1.      Hvaða meðferðir við offitu eru í boði hér á landi?
     2.      Hvaða árangri hafa annars vegar hjáveituaðgerðir á maga skilað og hins vegar magabandsaðgerðir?
     3.      Hver er kostn­aður ríkisins annars vegar við hverja hjáveituaðgerð og hins vegar við hverja magabandsaðgerð?
     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að Sjúkratryggingar Íslands greiði kostnað við magabandsaðgerðir eins og við hjáveituaðgerðir?


Skriflegt svar óskast.