Ferill 757. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1264  —  757. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðis­ráð­herra um greiðslur Sjúkratrygginga Íslands vegna ferðakostnaðar sjúklinga.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hversu háar upphæðir greiddu Sjúkratryggingar Íslands árlega 2005–2015 vegna ferðakostnaðar sjúklinga?
     2.      Hversu háar upphæðir greiddu Sjúkratryggingar Íslands á sama tímabili vegna ferðakostnaðar sjúklinga sem fóru með inn­an­lands­flugi? Upplýsingarnar óskast sundurliðaðar eftir árum og flugleiðum.
     3.      Hvert var meðalverð á greiddum flugmiða árið 2015?


Skriflegt svar óskast.