Ferill 829. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1563  —  829. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um vernd mannréttinda og lýðræðis í Tyrklandi.


Flm.: Steinunn Þóra Árnadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Óttarr Proppé, Össur Skarphéðinsson.


    Alþingi skorar á tyrknesk stjórnvöld að standa vörð um lýðræði, frelsi þjóðernisminnihlutahópa, borgaraleg réttindi og frjálsa fjölmiðlun í Tyrklandi.

Greinargerð.

    Blóðug átök og innanlandsdeilur í Tyrklandi í kjölfar nýlegrar valdaránstilraunar eru umheiminum áhyggjuefni. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir og rík ástæða er til að óttast að mannréttindi séu ekki virt. Nýlega hafa tyrknesk stjórnvöld þrengt að lýðræði í landinu með því að svipta þingmenn á tyrkneska þinginu þinghelgi og mikill fjöldi blaðamanna hefur verið hnepptur í fangelsi svo dæmi séu tekin. Efasemdir um að lýðræði og frjáls fjölmiðlun njóti tilhlýðilegrar verndar eru því óhjákvæmilegar.
    Ýmis óheillaskref hafa verið stigin í Tyrklandi á síðustu missirum. Má þar nefna áætlanir um að taka á ný upp dauðarefsingu og dómsúrskurð í þá átt að lækka samræðisaldur, sem vakið hefur hörð viðbrögð mannréttinda- og kvennasamtaka í landinu.
    Í ljósi þess að kjarnorkuvopn úr vopnabúri NATO eru staðsett í Tyrklandi hlýtur hið ótrygga ástand þar að vekja sérstakan ugg.
    Fyllsta ástæða er til að hafa áhyggjur af hlutskipti tyrkneskra Kúrda við ríkjandi aðstæður og er vert að beina þeirri áskorun til stjórnvalda í Tyrklandi að virða mannréttindi og mannhelgi allra tyrkneskra borgara.
    Við aðstæður sem þessar er það skylda annarra ríkja að láta í sér heyra og það á Ísland að gera þó að smátt sé.