Ferill 843. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1579  —  843. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum (viðmiðunardagur umsóknar um kosningarrétt o.fl.).

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


1. gr.

    Í stað orðsins „Seltjarnarneskaupstaður“ í 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: Seltjarnar­nesbær.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. skal umsókn um kosningarrétt skv. b-lið 2. mgr. 1. gr. sem berst Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi 29. september 2016 gilda frá dagsetningu bréfs hennar um að umsækjandi skuli tekinn á kjörskrá. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna.
    Fullnægjandi umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá Íslands eftir 29. september 2016 gildir frá 1. desember 2016.
    Umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem barst Þjóðskrá Íslands eftir 1. desember 2015 og var fullnægjandi skal nú gilda frá gildistöku þessa ákvæðis. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna. Þjóðskrá Íslands tilkynnir umsækjanda þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitarstjórn.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

4. gr.

    2. gr. laga þessara fellur úr gildi 1. desember 2016.

Greinargerð.

    Í lögum um kosningar til Alþingis, nr. 80/1987, var ákvæði um að íslenskir ríkisborgarar misstu kosningarrétt sinn hér á landi við fasta búsetu erlendis lengur en fjögur ár. Þá var við­miðunardagur kjörskrár 1. desember. Með lögum árið 1989 var fjögurra ára tímabilið lengt í átta ár og þeim sem óskuðu að vera áfram á kjörskrá eftir það var gert það kleift miðað við 1. desember ár hvert eftir að umsókn var lögð fram. Skilyrði var að umsækjandi væri enn ís­lenskur ríkisborgari. Sá sem tekinn var á kjörskrá samkvæmt umsókn átti því kosningarrétt í fjögur ár og gat þá endurnýjað réttinn til næstu fjögurra ára og síðan koll af kolli. Árið 1991 var kosningalögunum breytt þannig að hætt var að miða kjörskrá við 1. desember og við­miðunardagur færður nær kjördegi. Er viðmiðunardagurinn nú fimm vikum fyrir kjördag. Gildistími ákvörðunar um að einhver skuli tekinn á kjörskrá eftir meira en átta ára búsetu erlendis hefur þó ávallt verið 1. desember eftir að umsókn var lögð fram.
    Töluverð reynsla er komin á framkvæmdina samkvæmt ákvæðinu og hefur gefist vel að miða við 1. desember ár hvert. Hagræði er í því fyrir íslenska ríkisborgara sem hafa lengi verið búsettir erlendis að miða gildistíma umsóknar um kosningarrétt við tiltekna dagsetn­ingu, sem þeir þekkja frá fyrri tíð, í stað þess að hafa hana breytilega frá einum tíma til annars. Viðkomandi á þá auðveldara með að muna hvenær hann þarf að sækja um aftur til að vera áfram á kjörskrá. Þetta leiðir hins vegar til þess að bregðast þarf sérstaklega við, ef þurfa þykir, þegar boðað er til kosninga á miðju reglulegu kjörtímabili.
    Samkvæmt nýju ákvæði til bráðabirgða verður leyst úr vandasamri stöðu íslenskra ríkis­borgara sem búsettir hafa verið erlendis lengur en átta ár og sækjast nú eftir að komast á kjör­skrá. Samkvæmt almennu ákvæði í 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis hefðu þeir ekki öðlast kosningarrétt fyrr en frá 1. desember 2016. Með frumvarpinu er komið til móts við hagsmuni tveggja hópa: Annars vegar þeirra sem búsettir eru erlendis og hafa sent fullnægjandi umsókn eftir 1. desember 2015 og hafa nú fengið bréf Þjóðskrár Íslands um að þeir eigi kosningarrétt frá 1. desember 2016. Þeir fá nú kosningarrétt frá gildistöku þessa ákvæðis og geta því kosið við þær alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru í haust. Hins vegar tekur frumvarpið á hagsmunum þeirra íslensku ríkisborgara sem búsettir hafa verið lengur en átta ár erlendis en hafa ekki enn sent Þjóðskrá umsókn um að verða teknir á kjörskrá. Nú munu þeir eiga þess kost að senda inn fullnægjandi umsóknir og öðlast kosningarrétt í tæka tíð. Þjóðskrá Íslands mun tilkynna hlutaðeigandi umsækjendum um þessar breytingar og kosningarrétt þeirra, sem og hlutaðeigandi sveitarstjórnum.
    Rétt þykir að taka fram að kosningarrétturinn, sem menn geta öðlast samkvæmt umsókn ef frumvarp þetta verður samþykkt, gildir til 1. desember 2016 og síðan áfram í fjögur ár skv. 2. gr. kosningalaga. Þetta þýðir að kjósandi heldur kosningarrétti sínum til 1. desember 2020. Til þess að vera áfram á kjörskrá eftir það verður kjósandi að sækja aftur um til Þjóðskrár Ís­lands eftir 1. desember 2019, sbr. 1. mgr. 2. gr. kosningalaga.
    Frumvarp sama efnis var samþykkt fyrir Alþingiskosningar 25. apríl 2009 og var um­sóknardagur um kosningarrétt miðaður við 25. mars sama ár eða 30 daga frest.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Með ákvæðinu er lögð til lagfæring á heiti sveitarfélags í 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. laganna en Seltjarnarneskaupstaður heitir nú Seltjarnarnesbær, sbr. auglýsingu nr. 775/2013.

Um 2. gr.

    Lagt er til ákvæði til bráðabirgða um að íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis verði teknir á kjörskrá ef þeir leggja fram fullnægjandi umsókn um kosningarrétt í síðasta lagi 29. september 2016. Öðlast þeir þá réttinn til að kjósa við þær alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru á hausti komanda. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. kosningalaga. Kosningarrétturinn fæst með þessu ákvæði ef umsókn berst Þjóðskrá Íslands fyrir miðnætti 29. september 2016 að íslenskum tíma. Umsækjendur eiga þess nú kost, sem hingað til, að sækja eyðublað á vef Þjóðskrár Íslands, www.skra.is. Eyðublaðið þarf að fylla út og undirrita eigin hendi og senda til Þjóðskrár með pósti eða sem skannað viðhengi í tölvu­pósti eða senda rafrænt í gegnum netskil. Mikilvægt er að umsókn berist áður en frestur er liðinn. Að öðrum kosti gildir fullnægjandi umsókn sem berst eftir að frestur er liðinn frá 1. desember 2016.
    Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis og höfðu þegar sent fullnægjandi umsókn um kosningarrétt, sem átti að gilda frá 1. desember 2016, öðlast á sama hátt kosningarrétt fyrir þær alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru í haust. Að öðru leyti fer um kosningarrétt­inn skv. 2. gr. kosningalaga. Þjóðskrá Íslands tilkynnir umsækjendum þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitarstjórnum.

Um 3. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.

Um 4. gr.

    Nýtt ákvæði til bráðabirgða skv. 2. gr. er tímabundið vegna alþingiskosninga sem fyrir­hugaðar eru í haust. Er með því verið að veita umsækjendum kost á því að verða teknir á kjörskrá sem þeir hefðu annars ekki haft samkvæmt gildandi lögum og greiða atkvæði við alþingiskosningarnar. Af þessum sökum er eðlilegt að hafa sólarlagsákvæði í lögunum og fellur bráðabirgðaákvæðið því brott þegar hefðbundinn frestur skv. 2. gr. kosningalaganna kemur á ný til framkvæmdar, þ.e. 1. desember 2016.