Ferill 856. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1623 — 856. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum (samkomudagur reglulegs Alþingis 2016).
Flm.: Forsætisráðherra.
1. gr.
Þrátt fyrir 4. mgr. 1. gr. skal 145. löggjafarþingi ljúka 29. október 2016.
Reglulegt Alþingi 2016, 146. löggjafarþing, skal koma saman þegar forseti Íslands hefur stefnt saman Alþingi, sbr. 22. og 24. gr. stjórnarskrárinnar, og standa fram til reglulegs samkomudags Alþingis 2017, annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar og 4. mgr. 1. gr. laga þessara.
2. gr.
Greinargerð.
Í 1. mgr. 35. gr. stjórnarskrárinnar eru ákvæði um samkomudag reglulegs Alþingis en þar segir að hann skuli vera 1. október ár hvert. Þeirri tímasetningu má samkvæmt ákvæði 2. mgr. sömu greinar breyta með lögum. Það var gert með lögum nr. 84/2011 (um breytingu á þingsköpum) og samkomudagurinn þá ákveðinn annar þriðjudagur í september. Aðstæður nú eru óvenjulegar þar sem alþingiskosningar eru fyrirhugaðar að hausti. Þykir hentugra fyrir störf Alþingis og afgreiðslu þingmála að núverandi löggjafarþingi verði fram haldið og nýtt löggjafarþing sett af afloknum kosningum.
Samkomudegi Alþingis hefur áður verið breytt til bráðabirgða og var það síðast gert árið 2013, sbr. lög nr. 88/2013.
Eins og áður segir gerir frumvarpið ráð fyrir því að yfirstandandi löggjafarþing, 145. löggjafarþing, verði framlengt til 29. október 2016, en þann dag er áformað að alþingiskosningar fari fram. Þar sem fyrirhugaðar alþingiskosningar munu fara fram áður en kjörtímabil alþingismanna rennur út þarf að rjúfa þing á grundvelli 24. gr. stjórnarskrárinnar til að kalla fram kosningar. Tilkynning um þingrof felur í sér hina formlegu ákvörðun um kjördag. Skv. 24. gr. skulu alþingiskosningar fara fram innan 45 daga frá því að þingrof er tilkynnt. Samkvæmt þessu er fyrst hægt að tilkynna um þingrof 15. september nk. miðað við kjördag 29. október.
Þingið getur starfað áfram þótt þingrof hafi verið tilkynnt enda halda alþingismenn umboði sínu til kjördags, sbr. 24. gr. stjórnarskrárinnar. Eins og jafnan í aðdraganda kosninga er þó gert ráð fyrir því að þingfundum verði frestað með hæfilegum fyrirvara svo að stjórnmálaflokkum og frambjóðendum gefist eðlilegur tími til undirbúnings og þátttöku í kosningabaráttu.
Í frumvarpinu er loks áréttað að reglulegt Alþingi 2016, sem sett verður afloknum kosningum, skuli standa fram til reglulegs samkomudags Alþingis 2017, þ.e. annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar og 4. mgr. 1. gr. laga um þingsköp Alþingis.