Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 5 — 5. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um málefni Brúneggja ehf. og upplýsingagjöf til almennings um brot á reglum um dýravelferð.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvenær varð ráðuneytinu fyrst kunnugt um ástand mála hjá Brúneggjum ehf. sem fjallað var um í fréttaþættinum Kastljósi á RÚV 28. nóvember 2016?
2. Hvernig og hvenær hefur ráðuneytið brugðist við upplýsingum um misbresti í starfsemi Brúneggja ehf. og hyggst ráðuneytið bregðast sérstaklega við upplýsingum sem fram komu í Kastljósi?
3. Hvaða verkferlar eru í ráðuneytinu til að tryggja að upplýsingar um misbresti í matvælaframleiðslu, svo sem brot á reglum um dýravelferð, berist almenningi þegar við á?
4. Hvaða skýringar eru á því að upplýsingar um blekkingarnar sem beitt var af hálfu Brúneggja ehf. og skýrt var frá í fyrrnefndum Kastljósþætti rötuðu ekki til almennings?
5. Hyggst ráðuneytið auðvelda fjölmiðlum að nálgast upplýsingar um brot eftirlitsskyldra aðila í landbúnaði gegn lögum um velferð dýra og lögum um matvæli og þá hvernig?
6. Hvar er á vegi stödd vinna ráðuneytisins við setningu nýrrar reglugerðar um vistvæna landbúnaðarframleiðslu í stað reglugerðar nr. 504/1998 sem fallin er úr gildi?
Skriflegt svar óskast.