Ferill 157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 224  —  157. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um biðlista eftir greiningu.

Frá Elsu Láru Arnardóttur.


     1.      Hyggst ráðherra hefja átak í að stytta biðlista eftir greiningu, m.a. hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og Þroska- og hegðunarstöð?
     2.      Hyggst ráðherra bæta við fjármagni til að stytta biðlista eða beita sér fyrir annars konar aðgerðum og ef svo er, hvernig aðgerðum?