Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 484  —  357. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um framlög til menningarsamningsins við Akureyrarbæ.

Frá Þórunni Egilsdóttur.


     1.      Hvernig hafa framlög ráðuneytisins til menningarsamningsins við Akureyri þróast á síðustu tíu árum miðað við framlög til stofnana á höfuðborgarsvæðinu sem eru sambærilegar þeim sem annast verkefni samningsins norðan heiða?
     2.      Telur ráðherra að endurskoða þurfi framlög til samningsins með tilliti til þess hvað það kostar Leikfélag Akureyrar að setja upp leiksýningar sem félagið er skuldbundið til samkvæmt menningarsamningi ráðuneytisins við Akureyrarbæ?


Skriflegt svar óskast.