Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 679  —  487. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um flutning námsbókalagers Menntamálastofnunar til A4.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hver var aðdragandi þess að bjóða A4 að taka við námsbókalager Menntamálastofnunar?
     2.      Hvaða stefnumörkun liggur að baki þeirri ákvörðun?
     3.      Hverju sætir að verkefnið var ekki boðið út?
     4.      Telur ráðherra að ákvörðunin samræmist lögum um opinber innkaup?
     5.      Hvernig telur ráðherra nýtt fyrirkomulag samræmast því lögbundna hlutverki Menntamálastofnunar að leggja grunnskólum til námsgögn?


Skriflegt svar óskast.