Ferill 528. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 961  —  528. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um einkavæðingu Iðnskólans í Hafnarfirði.


     1.      Hvað greiddi Tækniskólinn íslenska ríkinu fyrir Iðnskólann í Hafnarfirði?
    Við sameiningu Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans frá og með 1. ágúst 2015 var Iðnskólinn í Hafnarfirði lagður niður. Mennta- og menningarmálaráðuneytið gerði viðauka við gildandi þjónustusamning við Tækniskólann þar sem Tækniskólanum var falinn rekstur þeirrar einingar sem áður var Iðnskólinn í Hafnarfirði og þeirra eigna sem honum fylgdu. Engar greiðslur áttu sér stað frá Tækniskólanum fyrir Iðnskólann í Hafnarfirði, enda er ríkið eigandi og verður eigandi allra þeirra eigna sem Tækniskólinn tók til rekstrar ásamt þeim tækjum og tólum sem bætast við á rekstrartíma Tækniskólans, sbr. ákvæði þessa efnis í samningi ráðuneytisins við skólann. Verði þjónustusamningnum sagt upp eða ljúki samningstímanum af öðrum ástæðum mun ríkið taka við skólarekstrinum með öllum þeim eignum sem voru fyrir hendi, hafa verið endurnýjaðar og/eða hefur verið aflað af hálfu Tækniskólans.

     2.      Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu inn í Tækniskólann frá íslenska ríkinu við sameiningu hans við Iðnskólann í Hafnarfirði? Hverjar voru þessar eignir?
    Engar eignir runnu inn í Tækniskólann við gerð þjónustusamningsins um rekstur Iðnskólans í Hafnarfirði og engar eignir vegna þessa eru skráðar í efnahagsreikningi Tækniskólans, enda er ríkið eigandi eignanna og Tækniskólinn rekstraraðili. Tækniskólinn greiðir húsaleigu fyrir húsnæði skólans. Húsnæðið við Flatahraun 12 sem hýsti Iðnskólann í Hafnarfirði var byggt og er rekið samkvæmt samningi um einkaframkvæmd sem menntamálaráðuneyti, Hafnarfjarðarbær og fjármálaráðuneyti gerðu við Nýsi ehf. árið 1999. Samningurinn sem er til 25 ára gildir frá janúar 2000. Skólahúsnæðið er núna í eigu Taper ehf. Tækniskólinn greiðir Taper mánaðarlega leigu fyrir afnot af húsnæðinu með sama hætti og Iðnskólinn í Hafnarfirði gerði áður.

     3.      Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Tækniskólanum að lokinni sameiningu hans og Iðnskólans í Hafnarfirði?
    Nei, enda var Iðnskólinn í Hafnarfirði lagður niður.

     4.      Rann Iðnskólinn í Hafnarfirði ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Tækniskólann án nokkurs endurgjalds?
    Nei. Engar eigur ríkisins hafa runnið inn í Tækniskólann.