Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 982  —  612. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum (brottfall og framlenging bráðabirgðaákvæða).

Frá atvinnuveganefnd.


1. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða I í lögunum fellur brott.

2. gr.

    Í stað ártalanna „2016/2017“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2017/2018.

3. gr.

    Í stað ártalanna „2016/2017“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VIII í lögunum kemur: 2017/2018.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XVI í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „árið 2017“ kemur: árin 2017 og 2018.
     b.      Í stað orðanna „fiskveiðiárinu 2016/2017“ kemur: fiskveiðiárunum 2016/2017 og 2017/2018.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í frumvarpi þessu er lagt til að bráðabirgðaákvæði I í lögum um stjórn fiskveiða sem heimilar ráðherra að ráðstafa aflamagni skv. 5. mgr. 8. gr. laganna til áframeldis í þorski verði fellt úr gildi. Einnig er lagt til að þrjú ákvæði til bráðabirgða í lögunum verði framlengd til loka næsta fiskveiðárs. Í 2. gr. frumvarpsins er lögð til framlenging á ákvæði til bráðabirgða VII til að hafa afskipti af því þegar aflaheimildir eru framseldar eða þeim ráðstafað með öðrum hætti úr sveitarfélögum ef um er að ræða umtalsverðan hluta aflaheimilda viðkomandi sveitarfélags. Einnig er lagt til að ákvæði til bráðabirgða VIII um heimild ráðherra til að ráðstafa síld, þ.e. sumargotssíld og norsk-íslenskri síld, og makríl gegn greiðslu verði framlengt til næsta fiskveiðiárs. Að lokum er lagt til að ákvæði þess efnis að ráðherra sé heimilt að draga frá allt að 5,3% af leyfilegum heildarafla í makríl vegna makrílveiða íslenskra fiskiskipa og ráðstafa skv. 5. mgr. 8. gr. laganna verði framlengt til fiskveiðiársins 2017/2018.