Ferill 530. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 766 — 530. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um einkavæðingu Vélskólans.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvað greiddi Menntafélagið ehf., eða eigendur þess, íslenska ríkinu fyrir Vélskólann?
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu til Menntafélagsins ehf. og inn í Fjöltækniskólann frá íslenska ríkinu við einkavæðingu Vélskólans? Hverjar voru þessar eignir?
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Fjöltækniskólanum að lokinni einkavæðingu Vélskólans með flutningi hans til Menntafélagsins ehf.?
4. Rann Vélskólinn ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Fjöltækniskólann/Menntafélagið ehf. án nokkurs endurgjalds?
Skriflegt svar óskast.