Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 82 — 82. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um raforkuflutning í dreifðum byggðum.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvaða áætlanir liggja fyrir um lagningu þriggja fasa raflína í dreifðum byggðum og um framkvæmdir til að bæta afhendingu raforku í dreifbýli, hvaða áform eru um fjármögnun slíkra framkvæmda og hvenær verður þeim hrint í framkvæmd?
2. Hvenær telur ráðherra raunhæft að lokið verði nauðsynlegum úrbótum á flutningskerfi raforku í dreifbýli?
Skriflegt svar óskast.