Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 56  —  54. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um Samgöngustofu.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Hver var heildarfjöldi starfsmanna Samgöngustofu í lok árs 2016?
     2.      Hver var starfsmannafjöldi þeirra stofnana og stjórnsýslusviða sem sameinuðust undir hatti Samgöngustofu 1. júlí 2013?
     3.      Hvernig hefur árlegur rekstrarkostnaður Samgöngustofu þróast frá árinu 2008? Óskað er eftir sundurliðun á rekstrarkostnaði þeirra stofnana og stjórnsýslusviða sem runnu inn í Samgöngustofu.
     4.      Hversu miklar tekjur hefur Samgöngustofa haft af starfsemi sem rekin er á samkeppnismarkaði, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 119/2012? Óskað er eftir upplýsingum um hvert ár frá 2014–2016.


Skriflegt svar óskast.