Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 119 — 76. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017.
Frá utanríkisráðherra.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 2. júní og 26. júlí 2017, með fyrirvara um að veiðiheimildir færeyskra skipa í íslenskri lögsögu loðnuvertíðina 2017/2018 verði bundnar því skilyrði að íslenskum skipum séu jafnframt heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu Færeyja á árinu 2018.
Greinargerð.
Samningur þessi kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2017.
Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af kolmunna og síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2017.
Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 26. júlí 2017 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.
Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2017. Heildarafli þorsks verður þó samkvæmt samningi þessum ekki meiri en 2.400 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 650 lestir og engar veiðar eru heimilaðar á lúðu eða grálúðu.
Á árlegum fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Íslands og sjávarútvegsráðherra Færeyja sem haldinn var í Þórshöfn í Færeyjum 12.–13. desember 2017 náðist ekki samkomulag um veiðiheimildir Færeyinga í íslenskri lögsögu og um gagnkvæman aðgang að lögsögum ríkjanna vegna veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld 2018. Á fundinum bauð Ísland fram óbreyttan samning en Færeyjar kröfðust aukinna heimilda í botnfiski, þar með talið þorski, ásamt því að krefjast þess að allar takmarkanir á löndun loðnu til manneldisvinnslu í Færeyjum og vegna manneldisvinnslu færeyskra vinnsluskipa yrðu afnumdar.
Án samkomulags við Færeyjar munu íslenskum skipum ekki verða heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu Færeyja á árinu 2018. Undanfarin ár hafa íslensk skip veitt um 89% af heildaraflaheimildum sínum í kolmunna innan lögsögu Færeyja. Þessi aðgangur er því íslenskum útgerðum mikilvægur.
Þar sem ekki hefur enn náðst samkomulag milli þjóðanna er lagt til að veiðiheimildir færeyskra skipa í íslenskri lögsögu loðnuvertíðina 2017/2018 verði bundnar þeim fyrirvara að íslenskum skipum séu jafnframt heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu Færeyja á árinu 2018.
Fylgiskjal.
SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017.
a. Bréf utanríkisráðherra Íslands til utanríkisráðherra Færeyja.
Hr. landstjórnarmaður
Poul Michelsen
Uttanríkis- og vinnumálaráðið
Tórshavn
Hr. landstjórnarmaður,
Ég leyfi mér að vísa til samtala milli sjávarútvegsráðherra Færeyja og Íslands um fiskveiðar innan færeyskrar og íslenskrar lögsögu á árinu 2017.
Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:
„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017.
1. gr.
Heimilt er færeyskum skipum að landa afla sínum til vinnslu á Íslandi. Verði leyfilegur heildarafli minni en 500 þús. lestir er heimilt að landa til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldisvinnslu um borð í færeyskum vinnsluskipum magn sem nemur allt að 3/4 hlutum af kvóta færeyskra skipa, sbr. 1. mgr. Verði leyfilegur heildarafli aftur á móti meiri en 500 þús. lestir er eigi heimilt að landa til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldisvinnslu um borð í færeyskum vinnsluskipum meira en sem nemur 2/3 hlutum af kvóta færeyskra skipa, sbr. 1. mgr. Eftir 15. febrúar skal eigi meira en 1/3 hluti af kvóta færeyskra skipa fara til manneldisvinnslu utan Íslands. Heimildin til að landa til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar fer ekki undir 4.000 tonn, þótt það magn nemi hærra hlutfalli en 1/3 af loðnukvóta Færeyja.
Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2017/2018 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.“
Ég leyfi mér að staðfesta að ofangreint er skilningur minn og tekur samningurinn gildi til bráðabirgða í dag og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.“
Virðingarfyllst,
Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra
b. Svarbréf utanríkisráðherra Færeyja til utanríkisráðherra Íslands.
Uttanríkisráðharri Íslands
Harra utanríkisráðharri,
Eg loyvi mær at vátta bræv tygara dagsett hin 2. juni 2017, sum ljóðar soleiðis :
„Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum føroyska og íslendska fiskimálaráðharrarnar um fiskiveiði í føroyskum og íslendskum sjógvi í 2017.
Eg havi skilt, at semja er um fylgjandi:
„Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2017
1. gr.
Loyvt er føroyskum skipum at landa veiðina til framleiðslu í Íslandi. Verður heildarlodnukvotan minni enn 500 túsund tons, er loyvt at landa til matna uttan fyri Ísland ella at virka til matna um borð á føroyskum verksmiðjuskipum nøgd sum svarar til 3/ 4 av kvotuni hjá føroyskum skipum, sbr. 1. grein. Verður heildarkvotan har aftur ímóti størri enn 500 túsund tons, er ikki loyvt at landa til matna uttan fyri Ísland ella at virka til matna umborð á føroyskum skipum meira enn 2/3 av av føroysku kvotuni, sbr. 1. grein. Eftir 15. februar skal ikki meira enn 1/3 av føroysku kvotuni fara til matna uttan fyri Ísland. Eftir 15. februar fer nøgdin, ið loyvt er at landa til matna, ikki undir 4.000 tons, hóast henda nøgd er størri lutfall enn 1/3 af tí føroysku lodnukvotuni.
Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 2017/2018 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
Eg loyvi mær at staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er í samsvar við fatan Føroya landsstýris, og semjan fær gildi fyribils í dag og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.
Við hávirðing,
Poul Michelsen
uttanríkisráðharri