Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Nr. 2/148.
Þingskjal 147 — 76. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2017 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 2. júní og 26. júlí 2017, með fyrirvara um að veiðiheimildir færeyskra skipa í íslenskri lögsögu loðnuvertíðina 2017/2018 verði bundnar því skilyrði að íslenskum skipum séu jafnframt heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu Færeyja á árinu 2018.
Samþykkt á Alþingi 30. desember 2017.