Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 472 — 355. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um eiturefnaflutninga um íbúðahverfi.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
1. Hve mikið var flutt um íbúðahverfi á höfuðborgarsvæðinu hvert ár 2012–2017 af í fyrsta lagi eldsneyti, í öðru lagi tilbúnum efnaáburði og í þriðja lagi öðrum eiturefnum til atvinnurekstrar?
2. Hversu margar voru ferðirnar árlega með hvert þessara efna og hvað voru flutningatækin mörg?
Skriflegt svar óskast.