Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 542  —  299. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ráðningar ráðherrabílstjóra.


     1.      Hversu margir umsækjendur voru um hverja stöðu ráðherrabílstjóra á tímabilinu 2009 til dagsins í dag og hversu margir umsækjendur af hvoru kyni voru um hverja stöðu?
    Staða bílstjóra fyrir heilbrigðisráðherra hefur ekki verið auglýst á tímabilinu sem spurt er um. Bílstjórinn hefur verið í starfi sem ráðherrabílstjóri frá árinu 2001 og fluttist til velferðarráðuneytisins frá öðru ráðuneyti árið 2013 og hefur starfað þar síðan. Þess má geta að bílstjórinn er karlmaður.

     2.      Hvernig var hæfi umsækjenda metið og hver tók ákvörðun um ráðningu? Var tekið tillit til 26. gr. jafnréttislaga við ráðningar og til reglunnar um að ef starfsumsækjendur af gagnstæðum kynjum teljast jafnhæfir og það hallar á annað kynið á tilteknu starfssviði, þá beri að veita umsækjanda af því kyni starfið?
    Eins og fyrr segir hefur staða bílstjóra fyrir heilbrigðisráðherra ekki verið auglýst á því tímabili sem spurt er um og því ekki komið til þess að horfa þyrfti til laga og reglna sem spurningin vísar til í þessu samhengi.