Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 842 — 452. mál.
Áheyrnarfulltrúi.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998, með síðari breytingum (skipan í stjórn, brottfall ákvæða).
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Valbjörgu Ólafsdóttur og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Landssambandi lífeyrissjóða og Samtökum atvinnulífsins.
Í frumvarpinu er annars vegar mælt fyrir um fækkun varamanna í stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda úr sjö í tvo og hins vegar um brottfall þeirra ákvæða í lögunum sem eru efnislega samhljóða ákvæðum í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sem gilda um starfsemi Söfnunarsjóðsins. Í þeim umsögnum sem nefndinni hafa borist vegna málsins er tekið undir þau sjónarmið sem liggja að baki markmiðum frumvarpsins, að óþarft sé að gera kröfu um svo marga varamenn í stjórn sjóðsins og að óþarft sé að tvítaka í lögum þau ákvæði í lögum um Söfnunarsjóðinn sem lagt er til að falli brott. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ólafur Ísleifsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 24. apríl 2018.
Óli Björn Kárason, form. |
Bryndís Haraldsdóttir, frsm. | Þorsteinn Víglundsson. |
Helgi Hrafn Gunnarsson. | Hildur Sverrisdóttir. | Oddný G. Harðardóttir. |
Ólafur Þór Gunnarsson. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. |