Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 994 — 315. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða starfsmönnum ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra lagði ríkið til bifreið árið 2017? Hvert var heildarverðmæti bifreiðanna?
2. Hver voru meðalheildarlaun starfsmanna ráðuneytisins annars vegar og þessara stofnana hins vegar árið 2017? Hver voru hæstu heildarlaun einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar árið 2017?
3. Fengu einhverjir starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra endurgreiddan aksturskostnað árið 2017 og hver var heildaraksturskostnaður ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var hæsta greiðsla til einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar?
4. Fengu einhverjir starfsmenn ráðuneytisins og þessara stofnana endurgreiddan ferðakostnað í formi dagpeninga innan lands eða utan árið 2017 og hver var þá heildarferðakostnaður ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var hæsta greiðsla til einstaks starfsmanns ráðuneytis annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar vegna ferðakostnaðar innan lands annars vegar og erlendis hins vegar?
5. Var símakostnaður greiddur fyrir einhverja starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra árið 2017 og þá fyrir hve marga starfsmenn ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar hins vegar? Hver var heildarkostnaður ráðuneytisins og hverrar stofnunar vegna símakostnaðar? Hver var hæsta greiðsla vegna einstaks starfsmanns ráðuneytisins annars vegar og hverrar stofnunar ráðherra hins vegar?
6. Fengu starfsmenn ráðuneytisins eða þessara stofnana greidda fatapeninga árið 2017? Hver var þá heildarkostnaður ráðuneytisins og hverrar stofnunar vegna fatapeninga?
Ráðuneytið aflaði svara við fyrirspurninni frá stofnunum á málefnasviði ráðherra. Svör þeirra ásamt svörum vegna aðalskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytis má finna í töflum á næstu síðum.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Fjármálaeftirlitið | Fjársýsla ríkisins | Framkvæmdasýsla ríkisins | Ríkiskaup | Ríkiseignir | |
Er starfsmönnum lögð til bifreið? | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
Meðalheildarlaun 2017 | 10.526.319 | 11.501.327 | 8.225.400 | 8.693.965 | 8.487.914 | 8.929.606 |
Hæstu heildarlaun 2017 | 20.887.647 | 21.512.232 | 16.761.840 | 12.386.959 | 11.753.897 | 13.447.308 |
Fengu starfsmenn endurgreiddan aksturskostnað? | Já | Nei | Já | Já | Já | Já |
Heildaraksturskostnaður 2017 | 74.470 | – | 620.730 | 2.321.220 | 11.660 | 4.685.238 |
Hæsta greiðsla aksturskostnaðar | 45.100 | – | 152.900 | 616.660 | 11.660 | 719.400 |
Fengu starfsmenn greidda dagpeninga? | Já | Já | Já | Já | Já | Já |
Heildarferðakostnaður 2017 | 34.034.151 | 27.090.701 | 1.469.508 | 2.943.344 | 1.579.536 | 5.401.288 |
Hæsta greiðsla til starfsmanns vegna ferða erlendis | 1.452.360 | 1.985.835 | 283.552 | 636.310 | 370.946 | 51.095 |
Hæsta greiðsla til starfsmanns vegna ferða innan lands* | – | – | – | 494.700 | 44.800 | 893.300 |
Var símakostnaður greiddur? | Já | Já | Já | Já | Já | Já |
Fjöldi starfsmanna sem fékk símakostnað greiddan | 90 | 28 | 10 | 18 | 24 | 18 |
Heildarkostnaður síma | 3.365.003 | 1.246.479 | 484.963 | 971.708 | 1.061.839 | 822.650 |
Hæsta greiðsla vegna einstaks starfsmanns | 127.701 | 110.049 | 90.405 | 75.839 | 50.637 | 71.011 |
Fengu starfsmenn greidda fatapeninga? | Nei | Nei | Já | Nei | Nei | Nei |
Heildarkostnaður vegna fatapeninga | – | – | 70.000 | – | – | – |
* Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, og í flestum stofnunum sem undir málefnasvið fjármálaráðherra heyra, er meginreglan sú að greiða kostnað eftir reikningi vegna ferðalaga innan lands en þó ekki hærri en viðmiðunarfjárhæðir ferðakostnaðarnefndar.
Ríkisskattstjóri | Skattrannsóknarstjóri | Tollstjóri | Yfirskattanefnd | Bankasýsla ríkisins | ÁTVR | |
Er starfsmönnum lögð til bifreið? | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei | Nei |
Meðalheildarlaun 2017 | 8.434.777 | 9.657.900 | 8.494.032 | 10.638.093 | 12.051.227 | 5.794.959 |
Hæstu heildarlaun 2017 | 17.263.788 | 15.451.375 | 19.710.960 | 14.853.279 | 13.966.935 | 21.093.027 |
Fengu starfsmenn endurgreiddan aksturskostnað? | Já | Nei | Já | Já | Nei | Já |
Heildaraksturskostnaður 2017 | 1.290.850 | – | 3.030.082 | 79.090 | – | 3.894.820 |
Hæsta greiðsla aksturskostnaðar | 224.180 | – | 672.540 | 79.090 | – | 381.700 |
Fengu starfsmenn greidda dagpeninga? | Já | Já | Já | Nei | Nei | Já |
Heildarferðakostnaður 2017 | 12.164.399 | 3.722.608 | 18.985.512 | – | – | 33.225.081 |
Hæsta greiðsla til starfsmanns vegna ferða erlendis | 646.001 | 525.633 | 1.592.800 | – | – | 2.864.300 |
Hæsta greiðsla til starfsmanns vegna ferða innan lands* | – | – | – | – | – | 744.800 |
Var símakostnaður greiddur? | Já | Já | Já | Nei | Já | Já |
Fjöldi starfsmanna sem fékk símakostnað greiddan | 55 | 21 | 80 | – | 3 | 24 |
Heildarkostnaður vegna símakostnaðar | 1.840.658 | 996.325 | 2.432.927 | – | 191.580 | 1.301.466 |
Hæsta greiðsla vegna einstaks starfsmanns | 144.000 | 89.877 | 223.700 | – | 104.250 | 130.282 |
Fengu starfsmenn greidda fatapeninga? | Nei | Nei | Já | Nei | Nei | Nei |
Heildarkostnaður vegna fatapeninga | – | – | 1.474.152 | – | – | – |
* Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, og í flestum stofnunum sem undir málefnasvið fjármálaráðherra heyra, er meginreglan sú að greiða kostnað eftir reikningi vegna ferðalaga innan lands en þó ekki hærri en viðmiðunarfjárhæðir ferðakostnaðarnefndar.