Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1040, 148. löggjafarþing 423. mál: breyting á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (hlutabréfakaup, skuldajöfnun, álagning o.fl.).
Lög nr. 50 30. maí 2018.
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
Í upphafi hvers árs skal ríkisskattstjóri að fenginni staðfestingu ráðherra gefa út reglur um nánari skilyrði fyrir veitingu ívilnana samkvæmt ákvæði þessu.
II. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996, með síðari breytingum.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
V. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um fjársýsluskatt, nr. 165/2011, með síðari breytingum.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, með síðari breytingum.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.
Þingskjal 1040, 148. löggjafarþing 423. mál: breyting á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (hlutabréfakaup, skuldajöfnun, álagning o.fl.).
Lög nr. 50 30. maí 2018.
Lög um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (hlutabréfakaup, skuldajöfnun, álagning o.fl.).
1. gr.
Í stað „1. nóvember“ í 2. málsl. 6. mgr. 51. gr. laganna kemur: 1. október.2. gr.
3. mgr. 65. gr. laganna orðast svo:Í upphafi hvers árs skal ríkisskattstjóri að fenginni staðfestingu ráðherra gefa út reglur um nánari skilyrði fyrir veitingu ívilnana samkvæmt ákvæði þessu.
3. gr.
Í stað orðanna „til búsetu leigjanda“ í 3. málsl. 3. mgr. 66. gr. laganna kemur: sem nýtt er til búsetu leigjanda og fellur undir húsaleigulög.4. gr.
Í stað 3. og 4. málsl. 1. mgr. 90. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisskattstjóra er heimilt að ákveða að framtalsskil skuli almennt vera með rafrænum hætti og að málsmeðferð verði jafnframt rafræn, þ.m.t. samkvæmt ákvæðum 94.–96., 98., 99. og 101. gr.5. gr.
2. málsl. 1. mgr. 98. gr. laganna orðast svo: Birta skal hverjum skattaðila upplýsingar um þá skatta sem á hann hafa verið lagðir og er ríkisskattstjóra heimilt að senda tilkynningu þess efnis rafrænt.6. gr.
Í stað „60 daga“ í 1. málsl. 1. mgr. 99. gr. laganna kemur: þriggja mánaða.7. gr.
Í stað „1. júlí“ í 9. mgr. 112. gr. laganna kemur: 1. júní.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 114. gr. laganna:- Í stað „1. júlí“ í 3. málsl. kemur: 1. júní.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðslukröfum sem stofnast samkvæmt lögum þessum vegna tímabila fyrir uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti skal skuldajafna á móti vangoldnum sköttum og gjöldum, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 100. gr. og 136. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.
9. gr.
Við 2. mgr. 36. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðslukröfum sem stofnast samkvæmt lögum þessum vegna tímabila fyrir uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti skal skuldajafna á móti vangoldnum sköttum og gjöldum, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 100. gr. og 136. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.10. gr.
Á eftir orðunum „innheimtu þeirra“ í 21. gr. laganna kemur: og skuldajöfnun á móti gjaldföllnum sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélaga.11. gr.
Við 3. mgr. 25. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðslukröfum sem stofnast samkvæmt lögum þessum vegna tímabila fyrir uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti skal skuldajafna á móti vangoldnum sköttum og gjöldum, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 100. gr. og 136. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.12. gr.
Í stað „1. júlí“ og „1. nóvember“ í 6. mgr. 12. gr. laganna kemur: 1. júní; og: 1. október.13. gr.
Í stað „1. ágúst“ og „1. nóvember“ í 16. gr. laganna kemur: 1. júní; og: 1. október.14. gr.
Í stað „1. júlí“ og „1. nóvember“ í 6. mgr. 10. gr. laganna kemur: 1. júní; og: 1. október.15. gr.
Í stað „1. nóvember“ í 3. málsl. 2. mgr. 11. gr. laganna kemur: 1. október.16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 14. gr. laganna:- Í stað „1. júlí, 1. ágúst og 1. september“ í 2. málsl. kemur: 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.
- Í stað „1. nóvember“ í 3. málsl. kemur: 1. október.
- Í stað „1. júlí“ og „1. nóvember“ í 4. málsl. kemur: 1. júní; og: 1. október.
17. gr.
Í stað „1. júlí“ í 2. og 3. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna kemur: 1. júní.18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 29. maí 2018.