Ferill 648. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1164  —  648. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 74/2012 (veiðigjald 2018).

Frá atvinnuveganefnd.


1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir önnur ákvæði þessara laga, m.a. 8. og 9. gr., skal veiðigjald á landaðan afla, frá og með 1. september til 31. desember 2018, nema í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

Tegund Veiðigjald kr. Tegund Veiðigjald kr.
Blágóma 2,82 Loðna 1,80
Blálanga 9,98 Lýsa 7,59
Búrfiskur 78,73 Makríll 3,35
Djúpkarfi 17,35 Náskata 2,60
Gjölnir 3,25 Rækja 1,74
Grálúða 58,13 Sandkoli 3,04
Grásleppa 9,76 Síld 3,22
Gullkarfi 13,23 Skarkoli 17,14
Gulllax 6,51 Skata 5,86
Háfur 5,21 Skrápflúra 2,60
Hákarl 1,30 Skötuselur 25,59
Hámeri 5,21 Slétti langhali 9,76
Hlýri 16,92 Snarphali 3,04
Humar 20,17 Sólkoli 37,31
Hvítskata 6,72 Steinbítur 12,80
Hörpudiskur 10,19 Stinglax 8,03
Ígulker 8,03 Stóra brosma 3,04
Keila 6,94 Tindaskata 1,52
Kolmunni 1,16 Ufsi 13,23
Langa 11,50 Úthafskarfi 13,23
Langlúra 6,51 Ýsa 25,16
Litla brosma 1,95 Þorskur 21,69
Litli-karfi 7,81 Öfugkjafta 9,11

    Veiðigjald annarra nytjastofna en í töflunni greinir er 1,03 kr. á hvert kílógramm óslægðs afla. Veiðigjald fyrir hval er sem hér segir: Langreyður 51.440 kr. og hrefna 8.230 kr. Veiðigjald á sjávargróður er: 514 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).
    Hver gjaldskyldur aðili á rétt á því að veittur sé 20% afsláttur af fyrstu 1,58 millj. kr. álagðs veiðigjalds og 15% afsláttur af næstu 1,58 millj. kr. álagningar, vegna afla sem landað er frá 1. september til 31. desember 2018.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Fyrirmælum annarra ákvæða laganna verður beitt við framkvæmd laga þessara, þótt lögin falli að öðru leyti úr gildi 31. desember 2018.

Greinargerð.

    Lög um veiðigjald falla úr gildi 31. desember nk. og að óbreyttu stendur engin lagaheimild til álagningar veiðigjalds á landaðan afla í botnfiski frá 1. september nk. Með frumvarpi þessu er því lagt til að veiðigjald fiskveiðiársins 2017/2018 verði framlengt óbreytt, þannig að það gildi út almanaksárið 2018.
    Unnið hefur verið að frumvarpi um heildarendurskoðun laga um veiðigjald í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu með atbeina veiðigjaldsnefndar. Gert er ráð fyrir því að ráðherra mæli fyrir því frumvarpi næsta haust.
    Sú tafla sem stendur í 1. gr. þessa frumvarps er tekin óbreytt úr reglugerð nr. 310/2018 um breytingu á reglugerð nr. 637/2017 um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda fiskveiðiárið 2017/18. Þannig verður veiðigjaldið, sem áður segir, óbreytt út almanaksárið 2018. Í 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins er lagt til að svonefndur persónuafsláttur verði einnig óbreyttur, að teknu tilliti til gildistíma frumvarpsins.
    Verði frumvarp þetta að lögum má gróft áætla tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi tímabilsins 1. september til ársloka 2018 sem þriðjung af tekjum ríkissjóðs af veiðigjaldi fiskveiðiársins 2017/2018, þ.e. að tekjurnar muni nema um 3,6 milljörðum kr.