Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 290 — 207. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um áhrif húsnæðisliðar vísitölu neysluverðs á lán heimila.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
Hver er heildarfjárhæð verðbóta sem reiknast hafa á verðtryggð lán heimila á árabilinu 2013–2017 sundurliðuð eftir árum og hversu stór hluti verðbótanna er til kominn vegna áhrifa af hækkun húsnæðisliðar vísitölu neysluverðs?
Skriflegt svar óskast.