Ferill 577. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 974  —  577. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fjölda starfa hjá ríkinu.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


     1.      Hver var fjöldi starfa hjá ríkinu, þ.e. þar sem Fjársýsla ríkisins er launagreiðandi, ár hvert á tímabilinu 2008–2018, sundurliðað eftir landshlutum og eftirfarandi störfum:
                  a.      störfum innan menntakerfisins,
                  b.      störfum við löggæslu,
                  c.      störfum innan heilbrigðiskerfisins,
                  d.      störfum við stjórnsýslu, og
                  e.      öðrum störfum?
     2.      Hver var fjöldi starfa hjá opinberum hlutafélögum og bönkum í ríkiseigu ár hvert á tímabilinu 2010–2018, sundurliðað eftir landshlutum?


Skriflegt svar óskast.