Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1018  —  613. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um uppbyggingu og framþróun Hornafjarðarflugvallar.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


    Hver eru áform ráðherra varðandi frekari uppbyggingu og framþróun Hornafjarðarflugvallar? Eru uppi áform um að tryggja að hægt verði að sinna þaðan millilandaflugi?


Skriflegt svar óskast.