Ferill 52. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1748  —  52. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988,
með síðari breytingum (tíðavörur og getnaðarvarnir).


(Eftir 2. umræðu, 7. júní.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 14. gr. laganna:
     a.      11. tölul. orðast svo: Getnaðarvarnir sem falla undir vöruliði nr. 3004, 3006, 3926, 4014 og 9021 í tollskrá.
     b.      Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Tíðavörur sem falla undir vöruliði nr. 3926, 4014, 6211 og 9619 í tollskrá.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. september 2019.