Ferill 1012. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2083  —  1012. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um verktakakostnað embættis sérstaks saksóknara og embættis héraðssaksóknara.


     1.      Hver hefur kostnaður embættis sérstaks saksóknara og embættis héraðssaksóknara verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2017?
    Kostnaður embættis sérstaks saksóknara og embættis héraðssaksóknara vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2017 var 624.857.557 kr. og er skipting milli ára eftirfarandi:

2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
162.053.585 140.635.526 165.852.195 108.453.972 28.089.888 7.358.382 6.638.805 5.775.204

     2.      Fyrir hvaða verkefni var þjónustan keypt, af hverjum og hve háar voru greiðslur til hvers og eins?
    Sjá fylgiskjal.

     3.      Hverjir voru skráðir stjórnarmenn lögaðila sem þjónustan var keypt af á hverjum tíma?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    Veigamikla úttekt þyrfti að gera til þess að veita upplýsingar um skráða stjórnarmenn lögaðila á hverjum tíma. Slík úttekt yrði það umfangsmikil að ekki er hægt að svara þeim hluta fyrirspurnarinnar í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. þingskapalaga.


Fylgiskjal.


Yfirlit, sbr. 2. tölul. fyrirspurnarinnar.

www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s2083-f_I.pdf