Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 226 — 214. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um vopnuð verkefni og útköll sérsveitar lögreglu.
Frá Smára McCarthy.
1. Hversu mörgum vopnuðum verkefnum og útköllum sinnti sérsveit lögreglu á árunum 2003–2017?
2. Hver er skýringin á töluvert aukinni tíðni slíkra verkefna og útkalla á árinu 2017 umfram önnur ár?
3. Hvaða breytingar hafa verið gerðar á starfsreglum, málaflokkum eða aðgerðavenjum lögreglu á undanförnu ári?
4. Er það í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í löggæslumálum að fjölga vopnuðum verkefnum og útköllum lögreglu? Ef ekki, stendur þá til að sporna við þessari þróun með einhverjum hætti?
Skriflegt svar óskast.