Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 315 — 284. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um nýsköpun í orkuframleiðslu.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða mismunandi tegundir orkuframleiðslu, sem ráðherra þekkir til, eru í þróun í heiminum og hvaða tegundir myndu henta vel á Íslandi?
2. Hver er stefna stjórnvalda varðandi nýsköpun í orkuframleiðslu?
3. Hversu miklir styrkir hafa verið veittir til nýsköpunar í orkumálum á undanförnum fimm árum, flokkað eftir tegund orkuframleiðslu, sbr. 1. tölul.?
4. Endurspegla styrkir stjórnvalda til nýsköpunar í orkuframleiðslu opinbera stefnu? Hver eru opinber markmið stjórnvalda með tilliti til hverrar tegundar orkuframleiðslu sem fær styrk og hvernig gengur að ná þeim markmiðum?
Skriflegt svar óskast.