Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 444 — 365. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um fjölda starfsmanna sem vinna við gerð lagafrumvarpa.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hversu margir starfsmenn, skipt niður á störf lögfræðinga og annarra, vinna að undirbúningi, samningu, yfirlestri og frágangi lagafrumvarpa í ráðuneytinu? Þess er óskað að tilgreint verði starfshlutfall við verkefnið ef ekki er um fullt starf að ræða.
2. Í hversu miklum mæli byggist vinna við gerð lagafrumvarpa á vegum ráðuneytisins á aðkeyptri vinnu utanaðkomandi sérfræðinga?
3. Hversu mikið greiddi ráðuneytið, og forverar þess, árlega árin 2008–2017 fyrir vinnu utanaðkomandi sérfræðinga við gerð lagafrumvarpa?
Skriflegt svar óskast.