Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 569 — 420. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um kærur og málsmeðferðartíma.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margar kærur bárust eftirtöldum á hverju ári frá árinu 2013:
a. áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema,
b. málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
c. mennta- og menningarmálaráðuneyti?
2. Hver var meðalafgreiðslutími á hverju ári? Hver var stysti tími sem tekið hefur að afgreiða kæru og hver var lengsti tími á hverju ári?
3. Hversu margar kærur voru óafgreiddar hjá hverjum úrskurðaraðila 1. nóvember sl.?
Skriflegt svar óskast.