Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 947  —  562. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um jöfnun orkukostnaðar.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hvernig miðar vinnu við jöfnun orkukostnaðar samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024?
     2.      Er ráðgert að jafna orkukostnað að fullu? Ef svo er, hvaða leiðir sér ráðherra til þess?
     3.      Er sambærileg markmið að finna í annarri stefnumótun stjórnvalda?
     4.      Er stuðningur við uppsetningu varmadælna á köldum svæðum bundinn við heimili?