Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 97 — 97. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ráðgjöf og störf
við tímabundin eða afmörkuð verkefni.
Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Hefur ráðherra fengið til starfa, tímabundið eða á grundvelli verksamnings, sérfræðinga eða aðra aðila til að veita ráðgjöf, sinna sérverkefnum eða verkefnastjórnun í einstökum verkefnum frá því að núverandi ríkisstjórn tók til starfa? Ef svo er, hvaða aðilar eru það, hverjar hafa greiðslur til þeirra verið og hver er lýsing á verkefnum þeirra?
Skriflegt svar óskast.