Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 387 — 228. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um verktakakostnað embættis ríkislögreglustjóra.
1. Hver hefur kostnaður embættis ríkislögreglustjóra verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2018?
Kostnaður embættis ríkislögreglustjóra vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2018 var 3.296.672.166 kr. og er skipting milli ára eftirfarandi:
2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 |
251.926.052 | 326.856.969 | 257.754.654 | 346.335.115 | 451.128.383 | 367.518.497 | 405.272.631 | 450.922.364 | 438.957.501 |
2. Fyrir hvaða verkefni var þjónustan keypt, af hverjum og hve háar voru greiðslur til hvers og eins?
Sjá fylgiskjal.
3. Hverjir voru skráðir stjórnarmenn lögaðila sem þjónustan var keypt af á hverjum tíma?
Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Veigamikla úttekt þyrfti að gera til þess að veita upplýsingar um skráða stjórnarmenn lögaðila á hverjum tíma. Slík úttekt yrði það umfangsmikil að ekki er hægt að svara þeim hluta fyrirspurnarinnar í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. þingskaparlaga, nr. 55/1991.
Fylgiskjal.