Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 611  —  186. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri,
nr. 34/1991, með síðari breytingum (búsetuskilyrði).


(Eftir 2. umræðu, 2. desember.)


1. gr.

    Í stað orðanna „enda séu viðkomandi aðilar búsettir eða með heimilisfesti“ í 2. mgr. 7. gr. laganna kemur: eða um þá sem eru búsettir.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „enda séu viðkomandi ríkisborgarar“ í 1. mgr. kemur: eða um þá sem eru.
     b.      Á eftir orðinu „Færeyingar“ í 2. mgr. kemur: og þeir.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.