Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 770 — 223. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um neytendalán og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um neytendalán, nr. 33/2013, með síðari breytingum.
1. gr.
4. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Ófrávíkjanleg ákvæði.
Ekki er heimilt að semja um eða bera fyrir sig kjör sem eru neytanda óhagstæðari en leiðir af lögum þessum.
Ekki er heimilt að semja um eða bera fyrir sig að lög annars ríkis takmarki þá vernd sem neytandi nýtur samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum laga þessara.
2. gr.
Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, sem orðast svo:
Lagaskil.
Hafi neytandi búsettur á Íslandi gert samning við lánveitanda sem hefur staðfestu í öðru ríki skulu íslensk lög gilda um samninginn ef:
a. undanfari samningsins var sérstakt tilboð til neytandans eða almenn auglýsing og nauðsynlegar ráðstafanir til samningsgerðarinnar af hans hálfu fóru fram hér á landi,
b. gagnaðilinn, eða umboðsmaður hans, tók við pöntun neytandans hér á landi, eða
c. samningur er um sölu vöru og neytandinn ferðaðist frá Íslandi til annars lands og gerði pöntun sína þar, að því tilskildu að ferðin hafi verið skipulögð af seljandanum í þeim tilgangi að hvetja neytandann til kaupanna.
Ekki er heimilt að semja um eða bera fyrir sig að lög ríkis sem er utan Evrópska efnahagssvæðisins gildi um lánssamning sem er nátengdur yfirráðasvæði ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins ef það leiðir til kjara sem eru neytandanum óhagstæðari en leiðir af lögum þessum.
3. gr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:
a. Í stað tölunnar „50“ kemur: 35.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Brjóti lánveitandi eða lánamiðlari gegn ákvæði 1. mgr. er neytanda ekki skylt að greiða heildarlántökukostnað láns.
5. gr.
Á eftir 2. mgr. 29. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Neytendastofa getur krafið lánveitendur sem ekki eru starfsleyfisskyldir samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki um upplýsingar og gögn sem nauðsynleg þykja til að meta áhrif lánastarfsemi á fjármálamarkað og neytendur. Neytendastofa getur krafist upplýsinga og gagna munnlega eða skriflega og skulu þau veitt innan hæfilegs frests sem stofnunin setur.
Upplýsingar og gögn skv. 3. mgr. geta náð til:
a. fjölda útlána á tilteknu tímabili,
b. fjárhæðar útlána á tilteknu tímabili,
c. meðalfjölda lána á hvern neytanda,
d. aldursdreifingar neytenda, og
e. hlutfalls vanskila miðað við daga, fjárhæðir, lánshæfismat og aldurshópa.
6. gr.
a. (29. gr. a.)
Skráningarskylda.
Neytendastofa setur nánari reglur um framkvæmd og skilyrði skráningar.
Neytendastofa skal upplýsa Fjármálaeftirlitið um aðila sem hlotið hafa skráningu hjá Neytendastofu skv. 1. mgr.
b. (29. gr. b.)
Synjun skráningar.
Fella skal skráðan aðila af skrá skv. 29. gr. a ef svo háttar um viðkomandi aðila, stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra sem um getur í 1. mgr.
7. gr.
Neytendastofa getur lagt stjórnvaldssektir á skráningarskyldan aðila skv. 29. gr. a sem stundar starfsemi samkvæmt lögum þessum án skráningar.
II. KAFLI
Breyting á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, með síðari breytingum.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 3. gr. og 6.–9. gr. gildi 1. mars 2020.