Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 872  —  414. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana þess.


    Innanríkisráðuneytið var starfrækt til 30. apríl 2017 en þá tók samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til starfa. Svar hvað varðar ráðuneytið miðast við stofnun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

     1.      Hversu oft á undanförnum sjö árum hefur ráðuneytið eða stofnanir þess greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna vegna annars vegar dómsmála, sátta fyrir dómstólum og sáttamála hjá ríkislögmanni og hins vegar annars konar sáttar eða samkomulags?
     2.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir undanfarin sjö ár í ráðuneytinu annars vegar og stofnunum ráðuneytisins hins vegar? Hver var árleg heildarfjárhæð í hverjum flokki uppgjörs fyrir sig?

Greiddar bætur Fjöldi starfslokasamninga Heildarupphæð starfslokasamninga
Ráðuneyti 0 kr. 1 3,2 millj. kr.
Stofnanir 0 kr. 6 33 millj. kr.

     3.      Hver er ábyrgð forstöðumanna sem segja starfsmanni upp á ólögmætan hátt á því tjóni sem þeir valda ríkissjóði og hvernig hefur verið farið með þá ábyrgð?
    Samkvæmt lögum bera forstöðumenn ríkisstofnana ábyrgð á starfsmannamálum sinnar stofnunar. Forstöðumenn bera jafnframt ábyrgð á fjárreiðum stofnunar og að rekstur sé innan heimilda fjárlaga. Forstöðumenn sæta ábyrgð líkt og kveðið er á um í 2. mgr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, en þar segir: „Forstöðumaður ber ábyrgð á að stofnun, sem hann stýrir, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf skv. 1. mgr. Forstöðumaður ber og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðunandi getur ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.“ Ekki hefur komið til ólögmætrar uppsagnar hjá stofnunum ráðuneytisins og því ekki reynt á ábyrgð forstöðumanna.

     4.      Hversu áreiðanlegar telur ráðherra að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu? Telur ráðherra hugsanlegt að gerðir séu starfslokasamningar sem fela í sér greiðslur úr ríkissjóði umfram lagaskyldur og kjarasamninga án vitneskju ráðuneytisins?
    Ráðherra hefur enga ástæðu til að ætla annað en að forstöðumenn veiti réttar upplýsingar um þessi mál sem önnur.
    Af þeim sex starfslokasamningum sem forstöðumenn ráðuneytisins hafa gert á undanförnum sjö árum var ráðuneytið upplýst um einn þeirra.

     5.      Hversu oft hafa starfsmenn ráðuneytisins eða stofnana þess haft forgang að sambærilegum störfum hjá ríkinu eftir að starf þeirra hefur verið lagt niður eða þeim hefur verið sagt upp og hvernig tryggir ráðuneytið að starfsmenn njóti þeirra réttinda?
    Starfsmönnum ríkisins er ekki tryggður forgangur til annarra starfa hjá ríkinu við starfslok, enda er það meginregla að auglýsa skuli öll laus störf, sbr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Dæmi eru um að Alþingi hafi samþykkt lög um sameiningar stofnana þar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði að starfsmönnum skuli boðið starf hjá nýrri stofnun. Á þetta við um sameiningar samgöngustofnana og sameiningar rannsóknarnefnda samgöngumála.