Ferill 844. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1499 — 844. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um lögbundin verkefni ÍL-sjóðs.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ÍL-sjóður?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ÍL-sjóðs og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.