Ferill 855. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1510 — 855. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um lögbundin verkefni Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.