Ferill 864. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1519  —  864. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um lögbundin verkefni opinberra háskóla.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna opinberir háskólar á Íslandi; Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum – Hólaskóli og Landbúnaðarháskóli Íslands?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna opinberra háskóla á Íslandi og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.