Ferill 874. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1529  —  874. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um lögbundin verkefni Miðstöðvar íslenskra bókmennta.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Miðstöð íslenskra bókmennta?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Miðstöðvar íslenskra bókmennta og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.