Ferill 898. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1896 —  898. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Persónuverndar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Persónuvernd?
    Í lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, er kveðið á um að Persónuvernd sé sjálfstæð stofnun með sérstaka stjórn. Í sömu lögum er svo nánar kveðið á um hlutverk Persónuverndar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Persónuverndar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til Persónuverndar samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 eru 305 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi, né í bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.