Ferill 982. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2047  —  982. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rannsóknir á ýsu.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til ýsurannsókna á árunum 2015–2020?
     2.      Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á ýsu hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
     3.      Hversu margar ritrýndar greinar um ýsu eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?


Skriflegt svar óskast.