Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 467 — 375. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lengd fangelsisdóma og bætur brotaþola.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hve langir hafa fangelsisdómar, skilorðsbundnir og óskilorðsbundnir, verið sl. tíu ár að meðaltali í mánuðum talið fyrir hverjar milljón krónur sem stungið var undan eða stolið, sundurliðað eftir tegundum brota:
a. svindl,
b. skattsvik,
c. fjárdráttur,
d. þjófnaður?
2. Hve háar bætur að meðaltali hafa sl. tíu ár verið dæmdar brotaþolum vegna:
a. meiðyrða,
b. ólögmætrar uppsagnar,
c. nauðungarvinnu,
d. líkamsárásar,
e. frelsissviptingar,
f. nauðgunar,
g. mansals?
Skriflegt svar óskast.