Ferill 521. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 862 — 521. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um varaflugvelli.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hve oft á ári hefur blindaðflug verið heimilað að Reykjavíkurflugvelli undanfarin fimm ár?
2. Hve oft hefur þurft í millilandaflugi til Íslands að lenda á varaflugvelli undanfarin fimm ár, sundurliðað eftir árum og flugvöllum?
Skriflegt svar óskast.