Ferill 540. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 894 — 540. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um innflutning sojabauna og ræktun.
Frá Eydísi Blöndal.
1. Hversu mikið var flutt af sojabaunum til landsins á árunum 2013–2018? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og upprunalandi baunanna og hvort þær voru ætlaðar til manneldis eða annars, t.d. í dýrafóður.
2. Telur ráðherra grundvöll fyrir ræktun sojabauna hér á landi?
Skriflegt svar óskast.